Hver er Geiri?

Starfsferill

Ásgeir Ásgeirsson, eða Geirix eins og hann er þekktastur, hefur starfað til margra ára sem ljósmyndari, en hann er þekktastur fyrir fréttaljósmyndun sína á vegum PressPhotos, sem þjónustaði flesta stærri miðla landsins, og Reuters.

Áður en hann sneri sér að ljósmyndun spannar starfsferill hans vinnu með framsæknum fyrirtækjum og stofnunum í heimsklassa sem eru/voru leiðandi í sínum greinum. Hann starfaði lengst af sem kerfisstjóri, en tók einnig þátt í umfangsmikilli hönnunar og hugmyndavinnu í margmiðlun og markaðssetningu. Meðal fyrrum vinnuveitendum má nefna Gagarín, WBS (Wireless Broadband Systems, síðar Hive), eMax, Bowthorpe í Crawley í Bretlandi (nú Spirent), Færeyska ríkissjónvarpið (Kringvarp Føroya) og Dómsmálaráðuneytið.

Fyrst um sinn ólst Ásgeir upp í Tungunum, nánar tiltekið á Múla, þaðan sem móðurætt hans rak bú lengi.
Var hann mikill dugnaðar strákur og tók þátt í öllum helstu verkefnum á bænum. 6 ára gamall lyfti hann heybagga, eins og ekkert væri, og kastaði upp á vagn, hann vaknaði klukkan 7 á morgnanna til að mjólka kýrnar og gerði alls kyns prakkarastrik.

Inn á milli dvaldi hann löngum stundum hjá sveitungum annars vegar og fjölskylduvinum í Reykjavík hins vegar, og eignaðist með því móti frábær kjörsystkin sem hann hefur haldið tengslum við alla tíð síðan.

Sjálfboðastörf

Ásgeir hefur í áratugi gefið af sér til samfélagsins í formi sjálfboðavinnu.

Rauði krossinn

Í mörg ár var hann hluti af Skyndihjálparhópi Reykjavíkurdeildar Rauða krossins sem sinnti skyndihjálparvöktum á stórviðburðum, svo sem Gleðigöngunni, 17. júní og Sólstöðugöngu Píeta samtakanna, auk þess að veita fyrstu hjálp á skólaböllum framhaldsskólanna.

Þá var hann einnig hluti af Viðbragðshópi Rauða krossins. Þar kom hann að sálrænum stuðningi á vettvangi eldsvoða á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann hlúði að fólki sem þurfti oft að yfirgefa heimili sín í skyndi vegna eldsvoða, og aðstoða það við að finna gistingu fyrstu nóttina. Sinnti hann einnig með hópnum svipuðum verkefnum eftir stór umferðaslys eða hamfarir. Þegar heilsu hans fór að hraka það mikið að hann átti erfitt með að sinna þessum verkefnum, tók hann að sér bakvakt hópsins, þar sem hann tók á móti beiðnum viðbragðsaðila og annarra eftir aðstoð hópsins, sem og annarra víða um land, og sá um að kalla út fólk á vettvang.

COVID, Landsbjörg og mataraðstoðin

Þegar COVID skall á árið 2020 hafði Rósa sinnt sjálfboðastörfum hjá Fjölskylduhjálp Íslands í 6 ár. Þegar hún frétti að hjálpastofnanir tilkynntu hver á fætur annarri að matarúthlutanir myndu falla niður sökum fjöldatakmarkanna, gat hún ekki horft upp á það, enda séð með eigin augum hversu mikil þörfin væri og hversu margar fjölskyldur og einstaklingar, sérstaklega úr þeim hópum sem glíma við heilsuvandamál fyrir, stóluðu á að fá þessa aðstoð.
Eftir stuttan fjölskyldufund var niðurstaðan sú að Ásgeiri og Rósu fannst þau ekki getað setið hjá, og tóku þau því þá ákvörðun að nota þau sambönd sem þau hefðu myndað í gegnum fjölbreytt störf í fréttaljósmynduninni og fengu samþykki almannavarna yfirvalda fyrir áformum sínum. Fjölskylduhjálpin veitti góðfúslega afnot af húsakynnum sínum ásamt fleiru og var kallaður til alveg MAGNAÐUR hópur framtakssamra einstaklinga – allt frá öryrkjum sem vildu leggja til hjálparhönd og allt upp í Forseta. Einnig komu að verkefninu fjöldi hjálparsveita, með aðstoð Landsbjargar, sölumenn, fjölmiðlafólk, skipulagsfræðingar, matvælafræðingar og svo mætti áfram telja. Fjölmörg fyrirtæki – matvælaframleiðendur, innflytjendur, útgerðir o.s.frv. – hófu að hafa samband og var útkoman sú að þeir sem fengu úthlutun fengu all veglegan pakka af matvöru keyrt heim af hjálparsveitafólki Landsbjargar. Rósa henti í skyndingu saman rafrænu skráningakerfi til að létta á símalínunum og fékk svo með sér örfáa vel valda einstaklinga í að fara yfir hverja einustu umsókn.
Á meðan á öllu þessu stóð átti Ásgeir að hefja nýja lyfjameðferð vegna verkjaheilkennisins (CRPS), en sló því á frest um rúma viku á meðan á þessu öllu stóð, þar sem hann vissi að lyfið myndi draga úr orkunni sem hann hefði. Var hann á fullu í erfiðis vinnu í allt að 16 tíma á dag í tiltekt, verkstjórn og skipulagi. Þegar verkefninu loksins lauk var hann logandi í líkamanum, frá toppi til táar, og nær gráti eftir allt erfiðið og tilfinninga rússíbanann.

Unglingsárin

Eftir alvarlega misnotkun sem hann varð fyrir 13 ára, átti hann erfitt með tilfinningar og samskipti við fólk og leitaði þá í bækur. Telur hann sig enn þann dag í dag eina nemandann sem lesið hafi hverja einustu bók á bókasafni Grunnskólans í Hveragerði.
14 ára gamall, á meðan hann var enn í grunnskóla, lauk Ásgeir 2 einingum í forritun sem gildu til háskólaprófs.

Að grunnskóla loknum sótti Ásgeir grunndeild rafiðnaðar við Fjölbrautaskóla Suðurlands og bauðst einnig að sitja glænýtt nám í margmiðlunar­hönnun hjá Prent­tæknistofnun samhliða því.

Lærði hann þar allt frá ljósmyndun og framköllun, þrívíddar­hönnun (VRML), prentun og prent­tækni o.s.frv.

Keyrði hann daglega frá Hveragerði til Selfoss í FSu, svo þaðan til Reykjavíkur í námið hjá PTS og var kominn heim aftur upp úr 11 á kvöldin.

Listin kemur til bjargar

Geiri hefur einnig alltaf haft mikla ástríðu fyrir listum.

Á sínum yngri árum eyddi hann miklum tíma í leikhúsum Hveragerðis og Selfoss, þar sem hann starfaði sem ljósamaður. Notaði hann tækifærið þar og lærði á tilfinningar og tjáningu á ný eftir ofbeldið sem hann hafði orðið fyrir 13 ára.

Áratugum síðar sneri hann aftur í leikhúsið, en að þessu sinni með myndavélar að vopni, bæði stafrænar og filmu.
Myndaði hann mikið starfsemi Tjarnarbíós og minni leikhópanna þar. Var þá yfirleitt um sjálfboðavinnu að ræða, nema ef stórar sýningar voru í kortunum og hann fékk ekkert val um að fá greitt fyrir sitt starf.

Enn þann dag í dag nýtur hann vináttu og trausts þessa gríðarlega stóra hóps, enda virðist hann soga að sér vini eins og svampur í vatni!

Í Tjarnarbíói kynntist hann einnig fjölda myndlistarmanna sem um tíma höfðu þar aðstöðu fyrir módel session, þar sem lítill hópur kom saman og teiknuðu eða máluðu módel sem sátu fyrir fyrir hópinn.

Ásgeir sá þarna kjörið tækifæri til að bæði skrásetja sköpunarferli listamannanna, samskipti þeirra við módelin sín, og eins skapa nokkur listaverk sjálfur.
Hélt hann meðal annars sýningu í Gallerí Fold með myndum frá þessum samkomum, og gaf einnig út bók í takmörkuðu upplagi samhliða.

The website is still under construction…

…SO THE STORY HAS YET TO BE TOLD IN ITS ENTIRETY

Shopping Cart